fimmtudagur, júní 05, 2008

Ég er í megrun

Flugfargjöld eftir þynd

posted by xxx @ 11:47 

þriðjudagur, mars 18, 2008

Totally still alive

Já spurning um að vekja bloggið mitt til lífsins aftur. Því þrátt fyrir að einhverjir meini að það sé sooo uncool að blogga þessa dagana finnst mér það ennþá alveg óumræðanlega kúl- alveg örugglega vegna þess að ég les það mest sjálf. Hef gaman að því að renna yfir gömul blogg og fylgjast með því hvernig lífið mitt og ég hef breyst í gegnum árin.

Ég flutti mig yfir á queenofasia meðan ég var á farandsfæti og hafði engan drifkraft í að blogga þegar ég kom heim fyrir næstum því 2 mánuðum síðan- var ekki að meika gráan hversdagsleikann og fannst nákvæmlega EKKERT spennandi við það sem ég var að gera. En ég er ööll að koma til.

Var sem sagt engan veginn tilbúin að snúa til baka- ef ég hefði ekki þurft að flytja (var búin að segja upp íbúðinni) hefði ég örugglega gefið skít í allt og haldið áfram einhverja mánuði. Ætli það hafi ekki verið gott að ég var með hluti sem ég þurfti að framkvæma hérna í Danmörkinni í febrúar ;-)

Hvað hef ég verið að gera af mér síðan þá? Living my daily life! Það er víst líf líka!

Renndi inn í Álaborg með lestinni kl 6 á mánudagsmorgni eftir sólarhings ferðalag frá Bangkok. Fór í langþráða sturtu, valdi mér einhver föt og mætti í tíma kl 8. Geri aðrir betur- varla sofið í einn og hálfan sólarhring. Enda var ég ekki upp á marga fiska þennan dag. Sólbrúnkan gerði mig samt svo hressilega að fólk var ekki að átta sig á útgangingum á mér.

Nú helgina eftir flutti ég dótið mitt í geymslu til Álaborgar. Hafði nefnilega plön um að taka mér hálft ár í frí frá námi (ef ég fyndi eitthvað spennandi að gera) eftir þessa önn. Sá fyrir mér að geta sparað húsaleigu í eina önn því okkur er reddað herbergjum hérna í Álaborg meðan við erum í klinik.

Svo byrjaði bara klinikinn á sjúkrahúsinu á Álaborg sem ég er að fíla í botn. Loksins fann ég spennuna aftur. Var farin að efast um val mitt á námi (þrátt fyrir geigvænlegan áhuga minn á mannslíkamanum)en núna er ég í fögum sem ég er virkilega að fíla. Gæti vel hugsað mér að verða heilakirurg eða heimilislæknir. Ég veit- ekki mikill skyldleiki með þessum fögum en áhugaverð bæði. Hef verið facineruð af heilanum frá byrjun og er það enn.

Skellti mér á þorrablótið í Árósum og hef kíkt eina og eina helgi á fólkið mitt þar. Svo gott að koma til Árósa.

Fór á Árshátíð Íslenskra Læknanema í DK- í Kongsins köben sem var mjög vel heppnuð og skemmtileg í alla staði. Húrra fyrir því. Vorum ekki nema þrú sem mættum frá Árósum- ég, Óskar (sem vorum skyldug enda fulltrúar í stjórninni fyrir Árósa) og Þóra. Skemmtum okkur mjög vel og hittum fullt af bæði nýjum og gamalkunnum andlitum.

Já er búin að ráða mig í vinnu sem læknir á sjúkrahúsinu á Akureyri í sumar og út árið. Það verður spennandi og ég hlakka mikið til að spreyta mig á þessu öllu saman. Veit ekki hvernig það verður að búa á AK en ég verð stutt frá fjölskyldunni. Hefur langað í svolítinn tíma að eyða tíma með þeim þar sem ég hef lítið verið á Íslandi sl ár. Núna fæ ég tækifæri til þess svona rétt áður en ég ræðst í lokaárið hérna í læknisfræðinni.

Núna er ég komin í páskafrí!! Sem er svoooo næs. Ætla mér ekki að gera neitt- þeas ekki færa mig neitt úr stað. Er að fara til Berlínar í ladyferð með Huldu, Höllu og Sigurveigu aðra helgina í apríl svo öll orkan verður notuð þar (líklega í að lyfta kokteilglösum og fata/skópokum). Ætla mér að lesa aðeins og jafnvel taka jafnvel vaktir ef ég fæ einhverjar hérna í Álaborg. Hef allavega nægan tíma því ég er ein hérna á kollegíinu- allir farnir eitthvert heim til fjölskyldunnar og nánast ein í Álaborg. Engin lambasteik og engin páskaegg hjá mér-sem er baaara jákvætt (vona að ég dragi rassgatið á mér í ræktina í staðinn)!

Annars tókst mér að týna töskunni minni um daginn og ég er símalaus! Sem er ágætt. Rólegt og EKKERT áreiti. Hugsa samt að ég fari að sakna hans fljótlega. Var gráti næst fyrstu 2 dagana en núna finnst mér þetta fínt. Í töskunni var peningavesið mitt líka svo ég get ekki keypt mér nýtt simkort(með sama númeri) fyrr en ég fæ nýtt dankort og það ver víst viku bið á því. Alveg rosalega pirrandi hvað danir höndla ekki annað en þessi blessuðu dankort. My ass. Er með bráðabirgðanúmer hjá telia fram að því-sem enginn þekkir, hihi.

Sem sagt ég er ekki dauð. Alls ekki.
Látum frekari pælingar bíða betri tíma

Góða páska- njótiði páskaeggjanna og knúsist. Ég sendi eitt í huganum.


gudny

posted by xxx @ 21:58 

sunnudagur, nóvember 25, 2007

Ég er alveg að fara

"Ha, ferðast ein? Um Asíu?"
Já! Ég hlakka geðveikt til!
"Þorirðu það?"
Já maður. Hefur alltaf langað að prófa að ferðast ein. Þetta verður ógeðslega gaman!


Svona hljómaði ég fyrir nokkrum vikum síðan, rétt áður en ég tölti borubrött inn á skrifstofu Kilroy og verslaði mér flugmiða til Bangkok. Nó prob! Renndi debetkortinu mínu í gegn og fékk svo kvittun í hendurnar með nokkrum núllum. Mikill péningur fyrir litla námskonu eins og mig. Jáh! Núna hætti ég ekki við muldraði ég og var rosalega stolt af sjálfri mér. Tölti ennþá borubrattari út af skrifstofunni og skellti á eftir mér hurðinni. Ég var að fara út í heim. Jeij.

Svo snéri ég mér að mestu leyti að bókunum. Inn á milli kitlaði tilhlökkunin mig í magann. 9.önn tjékk. Prófin öll í höfn og ritgerðin líka.

Síðustu daga hef ég ekki verið aaalveg jafnborubrött. Sveiflast á milli ótrúlegrar tilhlökkunar og hrikalegs kvíða. En það er víst eðlilegt. Ég læt mig þess vegna hafa það á milli þess sem ég panika. Panika yfir bólusetningum sem eru ekki alveg að gera sig. Panika yfir hvaða ég eigi að taka með. Panika yfir því að vera að fara ein. Panika yfir því að ég hef aldrei ferðast neitt af viti áður (Bandaríkin, borgarferðir og skíðaferðir eru eitthvað sem ég líki ekki við þetta).
Læt mig dagdreyma yfir bloggum þeirra sem hafa ferðast þetta (ég gæti verið gúglari að atvinnu, ég er pottþétt búin að gúgla þig sko!) og næri fiðrildin í maganum.
Geri mér samt grein fyrir því að miðað við mig á minn utanviðleika mun eitthvað fara úrskeiðis, vonum bara að það verði minni hlutirnir! Þannig að;

Ohhh ég hlakka svo til.

Næstu dagar fara í að redda því síðasta, því sem verður reddað! Á miðvikudagskvöld ætla ég að koma við í Árósum, fimmtudag í Köben og á föstudagsmorgunn flýg ég til Moskvu. Þar tek ég næturflug til Bangkok. Nú og ef ég lifi flugferðina með rússneska flugfélaginu af þá stend ég í Bangkok morguninn 1.des.

Ég bjó til blogg þar sem ég setti inn linka sem ég held að verði mér nytsamlegir á ferðinni. Gott að hafa þetta á einum stað. Þar mun ég skrifa þegar ég kemst í tölvu á þessu ferðalagi mínu, ásamt því að setja inn myndir..hopefully lots of them. Látið mig vita ef þið hafið ráðleggingar/hugmyndir um hvað ég á að gera á þessum þvælingi. Veit að einhver ykkar hafa farið um þetta svæði eða þekkið einhvern sem hafa gert það. Litlu mér veitir ekki af því!

Ég og bakpokinn í Asíu

Kvittið endilega ef þið kíkið við! Jafnvel bara til að segja hæ. Á alveg eftir að gleðjast heilmikið yfir því!

Svo vantar mig heimilisfangið hjá nokkrum ykkar til að senda póstkort/jólakort.
Ef ykkur langar í eitt, let me know!!! Þá helst á ferðablogginu eða emailinu.


By the way emailið er það sama og síðustu 10 ár (shit..10 ÁR!! Ég er ekki alveg búin að gera upp við mig hvort ég mun hafa síma, en pabba finnst það bráðnauðsynlegt. Þannig að jájá :-)

Jæja, five days to go. Luv ya!
Knús og kossar la guðný

posted by xxx @ 23:31 

fimmtudagur, október 25, 2007

Jes. Jú vanna vísum? Jú djúst send it to hér, only þríhundred krones. Jes. Okeíjesbæbæ.


Sit yfir húð-og kynsjúkdómum núna. Var einmitt að hugsa um það í dag hvað ég hef þjáðst mikið af þeim undanfarið. Veit ekki hvort það er bókin sem er smitandi eða hvað. Hef reyndar ekki tekið inn á mig marga af kynsjúkdómunum. Tja, reyndar engan af þeim enn sem komið er. Enda eru fæstir þeirra autoimmune og flestir með þekkta ætiologiu. Mér skilst líka að þeir smitist eingöngu við mjög náið samneyti við fólk. Hef ekki þurft að díla við svoleiðis undanfarið. Í stuttu máli hef ég sem sagt aðallega náð mér í autoimmune sjúkdóma með algjörlega óþekkta ætiologíu síðastliðnar vikur. Um daginn fékk ég til dæmis Pityriasis Rosea, á hægri kinn. Afar undarlegt í ljósi þess að andlit, fætur og hendur eru ekki með í skilgreiningu sjúkdómsins. En BÚMM! Jú vaknaði einn morguninn með þetta í andlitinu. Svei mér þá. Hvarf á 4 dögum, sem betur fer. Fékk krabbamein í tunguna fyrir um það bil tveimur vikum. Í dag fékk ég purpura á úlnliðinn. Sem er reyndar fáránlegt þar sem hún kemur yfirleitt fram þar sem pressan á bláæðakerfinu er mest, neðri hluta kroppsins. Þó líka á yst á útlimum. Svo heppilega vildi til að mér tókst að þvo hana af áðan! Jájá. Allt að gerast.

Efast stórlega um að ég komist lifandi í gegnum þetta!

Keypti mér dollara á föstudaginn var. Hann féll alveg heilmikið þá svo ég þrusaði út í banka og náði mér í dollara fyrir ferðina mína. Voðalega gott að hafa svoleiðis í rassvasanum.

Svo voru lonelyplanet bækurnar sem ég pantaði á netinu að skríða í hús frá Englandi.

Komst að því að fólkið í Víetnamska sendiráðinu í Köben kann ekki shit í ensku. Sendi þeim vegabréfið mitt til að fá visum upp á mánuð. Fékk það til baka í síðustu viku með stimpil upp á 2 vikur. Tók því upp símtólið og reyndi á minni dönskuskotnu amerísku að útskýra að ég þyrfti mánuð og spurði hvort ég ætti að senda þeim vegabréfið mitt aftur. Það tók einhvern hálftíma að kreysta út úr konunni einfalt”YES”. Áður var hún búin að fræða mig um öll helstu vandamál sem upp geta komið í sambandi við vegabréf og umsókn á visum. Svaraði greinilega standard svörum- random. Án þess að skilja nokkurn skapaðan hlut. Sendi þeim allavega vegabréfið aftur svo bíð ég spennt. Afskaplega spennt.

Bólusetningarnar mínar eru líka komnar í ísskápinn hjá Ole Torlacius, yfirlæknis á abdominalkirurgi. Þarf einhvern veginn að koma þeim í mig. Hann er bara alltaf svo upptekinn. Ætli ég verði svona þegar ég verð yfirlæknir? Örugglega. Þarf allavega að fá hann til að sprauta þessu í mig í næstu viku- í síðasta lagi. Ef hann hefur ekki tíma til þess læt ég Anton gera það. Hann er aðstoðarlæknir á nýrnadeildinni núna svo hann hlýtur að geta það... Má víst ekki gera þetta sjálf.

Á eftir að redda heilum helling. Vona að það takist allt saman að lokum.

Á deit með torrent annað kvöld. Er búin að hafa þetta forrit í tölvunni minni í hálft ár án þess að geta notað það. Kann það bara ekki. Kann ekki á tölvur. Svo ég er búin að redda mér manni sem ætlar að hjálpa mér með þennan andskota. Því núna er ég í miiiikilli þörf fyrir Grey’s Anatomy. Get bara ekki meir. Get ekki lifað lengur án þess. Ekki séns. Hef ekki horft á sjónvarp í fleiri mánuði (eða svo gott sem) og núna þarf ég minn skammt af óveruleika. Óraunveruleika. Djúsí hössl á bráðamóttökunni-Svona eins og þetta verður þegar ég klára eftir tæp 2 ár!Pottþétt!
Hef fundið mikið fyrir því síðustu daga hvað mig klæjar í fingurna. Mig klæjar eftir því að fá að gera eitthvað annað en að lesa og fylgjast með. Farin að hallast meira og meira að aðstoðarlækninum næsta vetur...kannski hálfan vetur ef ég finn eitthvað spennandi. Bara til að fá smá kjöt á þetta áður en ég fer í lokaprófið. Sjáum til, sjáum til.

I’m fine. We’re fine people. We do fine. Mikið rosalega missir þessi setning marks þegar hún er ekki í samhengi. Eins og ég. Ég er ekki í samhengi þessa dagana! En það er í góðu lagi mín vegna.

posted by xxx @ 20:53 

sunnudagur, október 21, 2007

Býður ekki uppáhalds frænda sínum í partý?

Eins gott að fólk bjóði mér í partý :)

posted by xxx @ 00:46 

sunnudagur, október 14, 2007

Það voru engin læti

þessa helgina :)
Ég man ekki einu sinni hvað ég gerði á föstudaginn. Jú! Alveg rétt. Ég leigði mynd með Kjetil sem er norskur vinur minn. Mér finnst stundum erfitt að leigja myndir með fólki. Þá fólki sem eru svona millivinir manns. Ekki bestu vinir, ekki kunningjar, heldur svona mitt á milli. Séstaklega ef það er aðili af hinu kyninu. Veit ekki afhverju. Líklega einhverjar óskrifaðar reglur sem eru að þvælast fyrir mér.

Ætli ég geti ekki kallað þetta bíómyndahelgi því ég fór með Ástu og Ínu (þýskur skiptinemi hérna í læknisfræði) á Nelson Mandela í Metropol á laugardeginum. Myndin heitir Goodbye Bafana. Það er nefnilega lítið sætt bíó hérna í Álaborg sem er nýbúið að gera upp. Vorum í litlum bíósal (aðeins 23 sæti), stólarnir klæddir rauðu flaueli og salurinn voða sætur. Svo getur maður keypt sér rauðvínsglas eða góðan bjór og sötrað yfir bíómyndinni. Oh mér fannst þetta allt svo rómó. Lá við að ég tæki í höndina á annað hvort Ínu eða Ástu, svo gripin var ég af stemmingunni. Mig vantar klárlega kærasta til að taka með mér í þetta bíó. En það er samt ekki næg ástæða til að næla sér í einn. Hihi. Svo það verður að bíða betri tíma.
Mæli allavega með myndinni! Já og bíóinu. Sérstaklega ef þið eruð í rómantískum fíling...skella sér til Álaborgar! eh.

Annars geri ég lítið annað þessa dagana en að láta mig dagdreyma. Hef aldrei verið svona áður. Er farin að hafa stórmiklar áhyggjur af þessu. Ég man að ég bloggaði um fyrir ca. hálfu ári síðan að gæti ekki tekið neinar ákvarðanir því það væru allt of margir möguleikar og allt of mikil óvissa í framtíðinni. Hah!! Núna hrúgast ákvarðanirnar inn og ég get ekki beðið eftir að framtíðin komi. Helst vildi ég skreppa eitt til tvö ár fram í tímann og halda áfram lífinu mínu þar. Nei, ok fyrst langar mig að hoppa yfir næsta mánuð og fara til Asíu og svo langar mig að hoppa eitt til tvö ár fram í timann. Helst tvö ár! Alveg hreint fáránlegt að hafa svona mörg fiðrildi á maganum yfir hlutum sem gerast ekki fyrr en eftir vissan fjölda ára og gleyma að lifa í nútíðinni. Verð að hætta þessu. Suss, suss.

Talandi um drauma. Mig dreymdi í fyrrinótt að ég væri á Indlandi að vinna á spítala sem var rétt við flugvöll. Út um gluggann sá ég litla flugfél hefja sig til flugs. Allt í einu fór hún að hristast öll og fljúga mjög skakkt, sikksakka. Svo sprakk hún og hrapaði til jarðar. Þá sá ég fólk satökkva úr flugvélinni, alelda. Fólkið hljóp alelda um svæðið þangað til það gafst upp og dó. Brann til kaldra kola. Ég vona að þetta sé ekki ills viti. Úff.

Jæja...

Annars langar mig aðeins að minnast á eina frétt. Þessa hérna. Þegar ég las hana hnaut ég um setninguna "ein af 22 einstaklingum sem töldu sig hafa orðið fyrir nauðgun árið 1998." Geri mér grein fyrir því að það er vafalaust erfitt að orða þetta betur þar sem málið hennar var ekki tekið fyrir rétti og þar af leiðandi var engin sekt sönnuð og afbrotamaðurinn fær því að njóta vafans. Hún fær líka að líða fyrir hann -ef henni var nauðgað, þið skiljið. Ekkert er dæmt og þar af leiðandi ekkert sannað. En það er samt ekki málið. Ef ég breyti setningunni aðeins "ein af 22 einstaklingum sem töldu sig hafa orðið fyrir morði árið 1998." Nei okeims þá hefði persónan ekki verið til frásagnar. En hvað með "ein af þeim 22 einstaklingum sem töldu sig hafa orðið fyrir skotárás árið 1998." Hljómar fáránlega, ekki satt? Æji, ég er bara svo þreytt á því hvernig dæmt er í nauðgunarmálum á Íslandi (og annars staðar) og hversu erfitt er að koma þeim fyrir rétt. Þess vegna verð ég extra pirruð þegar ég rekst á svona setningar því konan var greinilega með andlega og líkamlega áverka eftir árásina. Allavega samkvæmt hennar eigin frásögn. Hún væri heldur ekki að ræða þetta mörgum árum seinna ef hún hefði verið að ljúga upp á manninn.

Ég gæti sagt svo margt, margt fleira. En ég held að ég hætti núna. Annars missi ég mig og það vil ég helst ekki gera. Ekki svona á netinu allavega.

Jæja planið er að fara að sofa fljótlega svo ég geti vaknað hress og einbeitt í fyrramálið og massað háls, nef og eyru. Það gekk nefnilega ekki of vel í dag því mig dagdreymdi svo mikið.

púrrípú G

posted by xxx @ 21:53 

sunnudagur, október 07, 2007

Had a verí næs víkend...jeees

Lagði land undir fót og sótti Árósa heim. Hljóp af lestarstöðinni á Bones þar sem ég hitti Evu, Peter, Ástu, Ínu og bumbulíus, Óskar og Hildi. Þegar úti að borða var búið keyrðum við heim til Hildar og Óskars og mér leið alveg eins og ég væri á Íslandi. Ína var á bíl svo við tróðum okkur í hann, komum við í sjoppu á leiðinni. Þetta finnst mér einmitt svo ekta íslenskt, 5 íslendingar í kremju í bíl, á leiðinni á djammið og koma við í sjoppu.. Ég er aldrei í bíl hérna í baunalandi. Neverever. Só þis felt verí æslandik.

Svo var sem sagt partý fyrir íslenska læknanema. Partý sem við höldum á hverri önn til að krækja í nýju íslensku læknanemana ef einhverjir hafa bæst í hópinn en það gerist ekki á hverri önn.

Ótrúlega skemmtilegt partý í alla staði og góð mæting. Takk fyrir frábært kvöld folks!! Kl 4 var klofni persónuleikinn ég farin að keppa við sjálfa mig í Singstar. Enda einstakleg léleg og átti í raun ekki möguleika í neinn þarna inni nema sjálfa mig. Við vorum hnífjöfn, ég og Guðjón. En þá var víst líka kominn tími á heimleið svo ég rúllaði heim. Þægilegt að þurfa ekki að fara nema í næsta hús til að sofa. Takk fyrir gistinguna Arnar - og lasagniað sem þú bjóst til handa mér í þynnkumat. Eins og að vera á hóteli.

Ég skellti mér svo í Stor Center Nord og verslaði mér 2 pils. Ekki búin að kaupa föt í marga mánuði svo mér fannst ég eiga það skilið. Sem sagt mikill afrekadagur í dag. Vona að ég verði jáfnsátt við pilsin þegar mesta djammþreytan er farin á morgun.

Þetta var síðasta partýið fyrir próf og núna eru það bækurnar sem bíða mín og þessi mikla vitneskja sem á að færast yfir í heilabúið mitt. Dusta rikið af straight ass Guðnýju og bretta upp ermarnar. Be serious.

Háls nef og eyru frá og með morgundeginum og svo Asía Asía Asía. Get ekki beðið!

posted by xxx @ 22:53